Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Beygingarlýsing íslensks nútímamáls

Ritstjóri Kristín Bjarnadóttir

Beygingarlýsing íslensks nútímamáls er safn beygingardæma sem birt eru í heild á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar má leita að orðum og einstökum beygingarmyndum orða, þ.m.t. mannanöfnum. Í safninu eru nú 271.371 beygingardæmi.

Leita má með tvennu móti í safninu. Í fyrsta lagi er leitað að hefðbundinni uppflettimynd orða, þ.e. nefnifalli eintölu af nafnorði (hestur), nafnhátt sagnar (koma), og nefnifall eintölu í karlkyni, frumstig af lýsingarorðum (góður).

Ef hakað er við "Leit að beygingarmynd" má slá inn hvaða orðmynd sem er, t.d. hestur, hesti, hestinum, hests, hestarnir; koma, kemur, kom, komumst, kominn; góður, góðan, gott, betri, bestur.


Leit að beygingarmynd



Upprunalegt markmið við gerð Beygingarlýsingarinnar var að koma upp beygingarlýsingu á tölvutæku formi sem nýtast mætti til tungutækniverkefna af ýmsu tagi, í orðabókargerð og við málfræðirannsóknir. Jafnframt var markmiðið að gera Beygingarlýsinguna aðgengilega fyrir almenning á vefnum. Vinna við verkið hófst árið 2002.

11. nóvember 2009:
Okkur er ánægja að tilkynna að Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur opnað aðgang að tölvutækum gögnum úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN). Aðgangurinn er veittur með atbeina , sem stutt hefur stofnunina með veglegum fjárstyrk í þessu skyni.

Með þessu framtaki er tryggt að allir hafi aðgang að þessum mikilvægu gögnum og geti nýtt þau í leik og starfi. Til að fylgja því eftir efnir Já til samkeppni um hugvitsamlega notkun á gögnunum. Sjá nánar á vefsíðunni Þú átt orðið þar sem keppnin er kynnt.






© Orðabók Háskólans / Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 2002-2009
Öll afritun Beygingarlýsingarinnar er bönnuð án leyfis.
Rétthafi efnisins er Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem sér um vefsíðuna og miðlun efnisins samkvæmt samningi við Menntamálaráðuneytið.
Vefsíða í vinnslu. Athugasemdir og ábendingar berist Kristínu Bjarnadóttur.